YouTube
|
Heimild: wikibooks
|
Hvernig er YouTube notað?
Sem óskráður notandi getur viðkomandi horft á flest myndbönd á YouTube. Til að setja inn myndbönd þarf að skrá sig sem notanda. Einföld leið er að nota Gmail (Google Accounts) eða skrá sig með hvaða öðru netfangi sem er.
|
Að setja inn myndbönd
Á forsíðu eftir innskráningu er takki merktur Upload. Þar er hægt að velja um að sækja myndband (Video file) eða taka upp myndband með vefmyndavél (Webcam – capture). |
Hvernig er hægt að nýta YouTube í námi og kennslu?
YouTube er einstaklega hentugt fyrir kennslu þar sem auðvelt er fyrir kennara að taka upp námsefni og setja það á vefinn og að sama skapi er afar einfalt fyrir nemanda að nálgast efnið hvenær og hvaðan sem er. Nemandi þarf ekki að vera skráður notandi til að nálgast efnið. |